Ég er alveg að uppgötva á hverjum degi hvað er yndislegt að vera einbúasteik. Selið hæða fer vel í mig og með mig. Er ósköp kát með að það sé föstudagur á morgun enda ekki alveg eins frábært og ég hafði áætlað að byrja aftur að vinna eftir sumarfrí..já og eftir Þjóðhátíð bara.
Þjóðhátíð var ævintýri. Hættum að fengum ráðum við að fljúga á föstudeginum og tókum nætursiglingu Herjólfs í staðinn, sem var í meira lagi ógleðileg. Eiginlega bara púra ógleði. En frekar fyndin eftir á. Mönnum eins og Haraldhval hvali að þakka. En helgin varð snilldin ein. Held ég taki strassbourgartaktíkina á þetta:
Þorlákshöfn, úrhelli, grænn Tryggvi, rækjusamloka, Haraldhval hvalur, ógleði, Haraldmáv mávur, Vestmannaeyjar, grill, leikurinn, Bavaria (ekki bjór), Svala Björk og reyklausi bróðirinn, Kirkjubæjarbraut, Ný dönsk, DJ Tryggvi, hvítt tjald, bolla, Freydís-pó, Villi ananas, bekkjabíll, brennan, brekka, Jónsi, face house, gallaúlpan, Andri og hvalurinn, Jens og ljósastjarnan, Þórlindur, rúmstuldur, Heiðrún haglega geit, græn dýna, Fannz með malandi kött í klofinu, skvísur í stofu, egó, fjöllin hafa vakað, mínus, reyktur lundi með smjöri, Hey ya, Bigga-söngur, sól, moon (not as in tungl), Hálft í hvoru, Baldvin og erfðabreytti kjúklingurinn, þoka, flugstöð, slumberparty, tær í hári.
Langt frá því að vera tæmandi listi, en svona var stemmningin. Hvað eru....359 dagar í næstu? J