...ég er að fara í svoldið forvitnilegt matarboð í kvöld. Er semsagt að fara að hitta fjórar eðalpæjur á mínum aldri...sem vill svo furðulega til að ég þekki mislítið og jafnvel ekki neitt. Við erum hinsvegar allar þremenningar. Ásdís Rósa, Ingibjörg, Ingella, Magnea og Kristín Laufey. Skemmtilegt.
29 september, 2004
28 september, 2004
Ég sem kom svo valhoppandi kát í vinnuna í morgun, eftir spinningtíma og læti, komst í svo arfavitlaust skap áðan....pjúfffffff. Svengd gæti hafa spilað inní. Einnig mögulega gjaldkeraskyldur mínar í starfsmannafélaginu...og kannski það séu líka þessi helv.. huge tilraunarottugleraugu sem okkur er nú skylt að bera allan liðlangan daginn á labbinu. Það er svo langt frá því að vera létt verk, þar sem ég nota nú einu sinni venjuleg gleraugu, að henda geimgleraugunum þar yfir og eiga fúnkera þannig allan daginn!! Fyrir utan náttúrulega að þetta er þannig til að toppa nördalúkkið....well. Allavega sveimar Toggi boss hér hljóðlega um og reynir að nappa okkur hlífðargleraugnalausar. 'Ásdíiiiiiiís, hvar eru gleraugun!!?' Ætlunin er sumsé að hengja bjöllu á köttinn.
26 september, 2004
ok..það er komin upp smá staða. Það vill svo til, skemmtilega jú, að á ammlisdaginn minn ætla ekki ómerkari hljómsveitir en Quarashi oooooog Prodigy að henda í gang í Höllinni. Spurningin er eftirfarandi, skal haldið í tónlistarveislu...eða skal halda ammlisteitlu í Selinu hæða? hmmmmm.
...dagurinn rétt skriðinn yfir hádegi, og dísan er mætt í vinnuna. Á dagskrá eru 4 þriggja tíma leysnihraðapróf..ágætt. Spurning um að hendast síðan ræktina og hengja sig svo á settið í Blásölunum og leyfa þeim að gefa mér eitthvað gott að borða. I believe I have a plan.
Fór annars í glensið á föstudaginn með Guðnýju og Þóru Kristínu, og var það með eindæmum skemmtilegt útlit. Takk fyrir kvöldið skvísur!
24 september, 2004
|19 september, 2004
Sólríkur sunnudagur, og stúlkunni sem fór snemma að sofa í gær finnst dagurinn langur. Góður en langur. Var vöknuð um níu og var einhvern veginn mætt á fótboltaæfingu fyrir hádegi...akkurat. Kom sjálfri mér og samstarfskonum mínum á óvart með fádæma fótafimi, þó knötturinn hafi kannski ekki ratað beint í markið frá mér. En ég var hinsvegar sökuð um tuddaskap. Gæti verið rétt. Á það til að missa mig í svona leikjum, alveg brjál, sem er líklega ástæðan fyrir því að ég stunda þá ekki.
Talandi um leiki. Ljóst skal vera að deiglupennar af landsbyggðinni rassskelltu litlu 101 Rvk deiglustrákana þannig í deiglukeilunni á föstudaginn...að annað eins hefur vart sést. Eftir tvo leiki höfðu dreifarar fengið 971 stig, en 101 Rvk aðeins 942. Deiglumeistari í keilu 2004 var einnig úr liði dreifara, Hörður Ægisson Skagamaður. Verð líka að koma því að, að dísan var hæst yfir línuna eftir fyrri leikinn...hah!
Rut Finnsdóttir Borland, snillingur og eðalmanneskja á afmæli í dag. Til hamingju Rutta mín.
16 september, 2004
Hefði betur verið í rúminu í dag. Er búin að vera í allan heila dag að reyna að leiðrétta meistaraleg mistök mín, þar sem einn tölustafur eyðilagði tveggja sólarhringa keyrslu...sigh..og þetta er ekki að virka! Pirrpirrpirrpirr. Er nú formlega farin að hafa áhyggjur af doðanum og þessu 'utan við sig' syndromi sem ég virðist þjást af. Hmmm.
15 september, 2004
Ég er með strengi síðan á föstudag í handleggjunum...og núna hafa bæst við stjarnfræðilega harðar sperrur í fótleggi...hef þ.a.l dálítinn sérstakan göngustíl í dag...minni jafnvel á sjötuga konu með gigt, e.t.v. með netta spastíska hliðarsveiflu. Svona gottvont samt sem áður.
Ég hugleiddi alvarlega í gær að fara á skotnámskeið. Altso læra á einhverja hentuga byssu...og læðast svo í skjóli nætur og bjarga vistkerfi tjarnarinnar niðrí miðbæ með því að taka mávaófétin útúr því. Við Fannz stóðum þarna í eftirmiðdagssólinni í gær, með café latte í pappabolla, og fylgdumst með samlífinu á tjörninni. Það var ótrúlega athyglisvert!! Mávarnir eru náttúrulega svo hrikalega frekir (og ljótir), og þegar maður sá aðfarirnar að aumingja öndunum...lá við ég hlypi til og þrykkti í afturendann á þeim. Ohhh. Brjálaður bíóloger á kantinum. Minntist síðan mávanna úr Nemo litla, 'mine!, mine!, mine!'. Að sama skapi var þetta allt saman frekar kómískt, allt í upplausn og baráttan um brauðmolana þannig að maður hefði ekki sloppið óhultur hefði maður lent á milli. Jamm.
Rut er að koma til landsins á morgun, gleðigleði, með Sebastian Goða litla í poka, og tvær ammrískar vinkonur sínar með. Er búin að samþykkja að sýna þeim glyslífi og glaum borgar óttans á föstudaginn.....Rut fannst ég einhverra hluta vegna tilvalin í það.
14 september, 2004
| Það er ekki einu sinni kominn miður september, en engu að síður er þetta annar morguninn í röð sem ég stend með geisladiskahulstur og skef rúðurnar á Silfrinu fnæsandi! Hvað er málið? Sköfurnar mínar tvær (rauðar, af því að það skiptir máli) eru týndar, lýsi eftir þeim. Hrumph. |
12 september, 2004
Held að Pétur hafi fengið sinn skerf af mér um helgina og rúmlega það. Selið hæða afskipt, og ég hef eytt kvöldinu þar til að settla málin. Enn tókst mér helgarútstáelsið svona ágætlega hreint upp. Hitti Petu mína á Brennslunni eftir vinnu á fös, þar sem við vermdum sætin fram eftir kvöldi. Fann síðan Fannz og hina líffræðinörrana mína og gerðum glaum. Það heyrir víst til tíðinda að á laugardagskvöldinu hittumst við systkinin öll, og fengum okkur öl. Hitti þá bræður á Bölinu, og vildi þá svo skemmtilega til að Úlfar og Jónas frændur og félagar okkar voru þar líka auk gamalla vina þeirra allra ofan af Skaga. Úr varð því hinn skemmtilegasti hittingur. Mjög gaman að fá bræðurna mína út! Ég eignaðist einmitt lítinn frænda þann 1.sept, en þá fæddist Finnu og umræddum Jónasi lítill sonur sem ku vera algjör eftirmynd föður síns.
Kíkti líka uppí Skorradal á laugardaginn í bústaðinn hjá M&P. Sem hann er að verða glæsilegur! Ætli maður eyði ekki nokkrum helgunum þar í framtíðinni...hmmm. Að lokum, þá bendi ég á Deiglupistilinn hans Guffa síðan á laugardaginn. Góður.
07 september, 2004
Ég borgaði afnotagjöld sjónvarpsins í fyrsta skipti í dag. Það var reyndar ekkert sérstaklega ánægjulegt. En hinsvegar sannarlegt bevis (yet another) um nýfengið sjálfstæði mitt og naflastrengsrof. Þykir mér :o)
Allt að gerast í vinnunni, og komst að því í dag að ég er semsagt ekki lengur hluti af gæðadeild Actavis hf. heldur orðin partur af þróunardeild Actavis Group. Sem er mjög gott, kátína í koti. Fór að hlaupa og síðan í jóga...og var svo aðframkomin af næringarskorti að ég ákvað að elda fyrir mig eina. Sem hefur ekki gerst síðan strengurinn slitnaði. Skellti frosnu hnetubuffi á pönnuna og frosnu spergilkáli í pott. Hljómar illa, ég veit, oooooog mér tókst að klúðra því. Well, það er ekki hægt að vera góður í öllu!!! heh
Núna ætla ég að fara myndast við að glamra á píanóið sem fylgdi slottinu, og væri glöð ef einhver gæti bent mér á sanngjarnan píanóstillara???
03 september, 2004
..i don´t care if monday´s blue....friday i´m in love. Fínasti föstudagur, sér senn fyrir endann á vinnudeginum og Harpa Hrönn á leiðinni í kaffi í selið hæða...alveg kominn tími á okkur tvær. Kvöldplan held ég að endi með bíóferð á einhverja soft-porn mynd sem er á kvikmyndahátíðinni í Háskólabíó..en ekki hvað. Maður verður að vera úthvíldur fyrir átök morgundagsins í óvissuferð ársins!!
02 september, 2004
Sem ég var löööt í vinnunni í dag. Svei. Björgun dagsins fólst í jógatíma hjá henni Soffíu mágkonu. Soffía er með jóga í Hreyfingu..og er alveg feikigóð, mæli með tímunum hennar. Jamm.
2 dagar í óvissuferð! jeij.
01 september, 2004
Í dag er ár liðið frá því ég varð Actavis-kona. Hratt líður stund. Spurning hvort þetta verður fyrsta árið af mörgum góðum þar...spurning hvar ég verð að ári. Kannski bara í útlöndum. Kannski bara í Skútuvogi.
Annars er lífið gott. Er enn í morgungeðveikinni í ræktinni, og fíla það vel...ennþá. Ekki eins erfitt og ég hélt að vakna örlítið (hmmm) fyrr. Jæja bíðum þangað til það verður dimmt og kalt, og sængin mín gerist eigingjarnari á mig. Fór á Browninn um helgina. Hann var góður kallinn. Mjög góður. En það var samt eitthvað..sem var ekki málið. Átti einhvern ekki von á 'showi' með 10 manna hljómsveit, bakröddum í bláum búningum og fáklæddum gógó píum on the side. Fannst þetta svoldið eitthvað..æft. Ehhh, eða sko meira eitthvað laust við allan frumleika og hráleika. En come on, maðurinn er 73! Ég held bara að ég hafi einhvern veginn búist við fertugum Brown í bullandi soulfíling og improvæsi, og líklega nett kókaðan en ekki þessu glanspappírpakkaða shówi með sykurhúð.
Annars átti hann Guffi kæri vin svo skemmtilega bloggfærslu í dag. Ef stílfært gæti ég hafa skrifað þetta...sérstaklega á mánudögum.
