Pay day í dag!! Jibbíjei! Miðvikudagur handan við hornið og ég er bara fíííííín. Átti stórskemmtilega helgi, sem leið frá A-Ö í ógnarlega góðum félagsskap. Var í borg óttans á föstudagskvöld, en í Vaðnesi á laugardagskvöld, prýðilegt hreint. Keyrði reyndar tvisvar framhjá Vaðnesi á leið minni þangað, og endaði síðan á að sprengja fremra dekkið hægra megin á Silfrinu. Þurfti því að keyra á löturhægt á aumingjanum (sem allir bíleigendur vita víst hvað er) í bæinn, og uppskar nafnbótina 'vinsælasti ökumaður helgarinnar á suðurlandi'! Jeij.
1.des á morgun, og líklega þarf dísan að fara að fjárfesta í einhverju jólaglingri til að jóla upp í Selinu Hæða. Talsverður þrýstingur frá konunum í vinnunni að föndra aðventukrans. Föndra jólakort. Helst bara föndra útí eitt. Nú, ég skil ekki föndur. Mér finnst m.a.s orðið föndur alveg massa furðulegt. Ég ætla bara í IKEA og kaupa einhvern svona jólaskrautspakka, all in one, christmas-survival kit.
Jæja, ætla að finna mér eitthvað til dundurs, ekki föndurs, jafnvel glugga í Da Vinci, sem vill ekki klárast. Yfir og út.
