Hmmmmm

29 desember, 2004

Elsku besta Katla Guðrún mín á afmæli í dag!! Til hamingju blómið mitt, hundrað þúsund knús til Strass!!!

|

27 desember, 2004

Það er dálítið erfitt að sætta sig við þessi stuttu jól eftir brandajólin í fyrra, og það að vera mættur í vinnuna þriðja í jólum. Hnuss. Er annars búin að eiga indælis jól. Þau voru þó með öðru sniði en vanalega. Í fyrsta lagi var matseðli jólanna síðastliðin 30 ár gjörbreytt úr staðlaðri -jólagrauts-hamborgarhryggjar-heimalagaðs ís-jólamáltíð í humarrétts-innbakaðrar nautalundar-jólagrauts-máltíð. Ber að nefna að dísan kom í fyrsta skipti nálægt matargerðinni og útbjó humarréttinn, sem mér fannst eðlilega bera af jólakrásunum. Í öðru lagi var lítil 2gja ára budda, Agnes Marí Gunnarsdóttir, með okkur á aðfangadagskvöld. Það var ekki leiðinlegt. Barnið brilleraði í söng og skemmtilegum kommentum, enda karakter mikill. Margt fékk ég líka fallegt í jólagjöf, þó fannst mér vanta bók. Frumlegasta jólagjöfin var þó örugglega bíómiði á mynd að eigin vali. Í lúxussal. Fyrir einn. Hversu fyndið?

|

24 desember, 2004

Gleðileg jól!

|

21 desember, 2004

Jólin koma. Nokkrar gjafir útistandandi. Fjöldi jólakorta skrifaður= 0. Á pistil á Deiglunni í dag. Hvað finnst ykkur um þetta?

|

17 desember, 2004

Ég kom heim í gærkvöldi upprifin og glennt eftir tónleika kvöldsins. Hvílík gargandi snilld sem hljómsveitin Hjálmar eru. Þó ótrúlegt megi virðast þá eru móðir mín og faðir búin að vera að agítera fyrir þessari hljómsveit á heimilinu síðan í sumar. Þau hringdu m.a.s. einhvern tíma snemma í haust og vöktu mig á helgidegi, til þess að skipa mér fram úr bælinu til þess að kveikja á Rás 2, því þar væri þessi gasalega fína hljómsveit með lag í gangi! Jatja, ég segi bara, smekksfólk eru foreldrar mínir. Þetta er sannarlega mikil eðalgrúppa, með eitthvað alveg nýtt og ferskt í pokahorninu. Auðvitað var hálf skemmtunin fólgin í því bara að horfa á þá (sérstaklega bassaleikarann). Snillingar. Meistari KK sveik heldur engan, og tóku þau í sameiningu hvern snilldarflutninginn á fætur öðrum. Hvað væri lífið án tónlistar?

Litlu jólin í vinnunni í dag. Kökur, kakó og pakkar í morgun. Hangikjöt í hádeginu. Síðan verður allt fljótandi í konfekti það sem eftir lifir vinnudags. Skilst að skúturnar ætli að hætta fyrr í dag og skella sér á Borgina í eitt, þrjú rauðvínsglös :o) Góða helgi.

|

15 desember, 2004

Jæja, nú er desember miður. Hef verið óvanalega dugleg í jólageðveikinni þetta árið. Íbúðin er orðin þannig skreytt að sumum þykir nóg um. Einnig hef ég verið dugleg að þræða miðstöðvar verslana, en reyndar aðeins uppskorið einn hlut til gjafa. Annað hef ég keypt handa sjálfri mér. Ekki vill maður lenda í kettinum jóla.

Á morgun eru það síðan tónleikar með Hjálmum og KK. Þeim gæti síðan fylgt innlit á Bölið. En ekki hvað? Hlakka til.

|

09 desember, 2004

This is a mighty fine day. Mighty fine. Litli föstudagur kominn á kantinn, og Skúturnar búnar að hækka útvarpið um einn í hljóðstyrk. Önnur mjöðmin er farin að dilla með og helgarplansumræðan komin á skrið. Gott kaffi í bolla, pródúktið mitt er þægt við mig, fólkið mitt er heilt og lífið er gott. Eigið góðan dag gott fólk :D

Er annars ekki eitthvað rokk um helgina?

|

08 desember, 2004

Stundum líður tíminn alls ekki neitt. T.d. þegar maður er lítill og bíður eftir jólunum. Þegar maður í hríðarbyl bíður eftir strætó. Á þeim andartökum sem að sprautunál stendur í handleggnum á manni. Í frústreruðum spreng utan við kvennaklósett skemmtistaða. Þegar maður bíður fregna af fólkinu sínu. Tíminn ekki líður þegar maður bíður. Sem rímar. En ég bíð, og vona. Úúúúffff, fór alveg öfugt framúr í morgun, fimmti kaffibollinn í húsi, og fagrar fyrirætlanir um minnkaða koffíninntöku farnar fyrir lítið. Skriður að komast á Dísuna núna um hádegisbil, ekki seinna vænna. Yfir og inn eins og Yann segir. Yfir og inn.

|

07 desember, 2004

Það er alltof fyndin tannkremsumræða í gangi á blogginu hans Valþórs þessa dagana :D

|

06 desember, 2004

Mánudagur í dag, og hreint ekki til mæðu. Hér í Skútuvoginum eru allir svo uppgíraðir eftir jólahlaðborðið sem var haldið á föstudaginn, og tókst svona líka vel upp að fólk er bara enn í gír. Prýðilegur matur, Bubbi og Paparnir gerðu sitt og skiluðu Actavis fólki heitu inná Sálarballið á Nasa. Geysileg stemmning, og mín fékk eðlilega endurtekin flashbacks á Sálarböllin í Valaskjálf. Sunnudagurinn fór í fjölskylduboð heima í Blásölunum, þar sem Agnes Marí (2gja) og Saleóme (3gja) bræðradætur mínar gerðu sitt til að tryggja það að nóg væri af drísillátum og dramatík, og drasli og dóti út um allt. Eins og það er dýrðlegt að hitta þær, er líka bara fínt að kveðja þær, litlu dýrin. Jæja, arbeiten!!

|