Hmmmmm

25 janúar, 2005

jæja, ég nenni þessu ekki. Ég er bara farin til Búdapest. Síðar.

|

24 janúar, 2005

Brottför til Lundúna á morgun...jeij! Á eftir að gera allt, en þó er allt til reiðu. Við hittumst einmitt ferðafélagarnir á laugardagskvöldið, borðuðum saman dýrindismáltíð a la Fanney, og veltum okkur uppúr bæklingum um Búdapest. Ákváðum að fara í vínsmökkun (bannað að spýta) og heimasækja baðhús og fá okkur heilnudd. Katla ræður öðru í þessari för. Því næst fórum við í singstar. Hversu skemmtilegt? Hversu fyndið er að taka playback á 'baby talk'? Jatja, mjöööög skemmtilegt.

Á föstudaginn var framboðslisti Vöku árið 2005 kynntur, og það var ekki neitt slor. Hlakka til að fylgjast með þeim vinna þessar kosningar. Þetta var mjög skemmtilegt. Ég er svona reyndar að binda vonir við að Guðfinnur bloggi um spaðaupplifunina, sem hann lýsti fyrir mér í hláturskastssímtali daginn eftir. Og þó, kannski ágætt að halda því bara milli spaða hehehe. Yfir og inn!

heijá og hún Katla mín Guðrún var rétt í þessu að rúlla upp anatómíuprófi dauðans, með 9.5 og 10, þannig ég segi bara til hamingju Ketill kúkur!

|

19 janúar, 2005

Ég hef tekið gleði mína á ný. SkyEurope er aftur komið í góðu bækurnar. Fengum flug sama daginn, og frímiða vegna vandræðanna, frá London hvert sem hugurinn girnist sem dugir fram í október. Vei. Þannig brottför frá klakanum til London er 25. og Þurý og Jussi snillingar hafa boðist til að hýsa ferðalangana í Cambridge yfir nóttina. Á hádegi þann 26. verðum við komin í Pestina Búda þar sem Ketillinn mun taka á móti okkur. Get ekki beðið. Finnst það eftir á að hyggja algjör snilldartímasetning að bregða sér af bæ í köldum og dimmum janúarmánuði.

Átti ægilega busy helgi eitthvað en góða. Eirðarleysið gagntók mig og heiðraði dísan því miðbæinn með nærveru sinni bæði kvöldin. Mjög gaman, var t.d. búin að gleyma hvað getur brjálæðislega skemmtilegt að hrista skankana á 22 þegar góður Dj er í húsi.

Var með pistil á Deiglunni í dag. Mín hjartans mál heheh.

|

17 janúar, 2005

Ég gæti grenjað. Einhver hefur mikið á móti því að það verði greiðfært til Búdapest 26.janúar. Nú hefur SkyEurope líka beilað á okkur!!!!!!! Hvað er í gangi? Note to self: aldrei að treysta lágflugfargjaldafyrirtæki. Aldrei. An...hel..djö..

|

14 janúar, 2005

...og já ég gleymdi næstum því. Þarf að nota þetta aðgengi mitt að veraldarvefnum til að lýsa algjöru frati á Iceland Express. Þeir eru nú í annað skipti síðan við bókuðum okkur far í...október eða eitthvað, að breyta ferðaáætlun. Í þetta skiptið lítur út fyrir að við missum af tengifluginu til Búdapest. Nema þá að við sitjum fremst, ferðumst bara með handfarangur og treystum á dýnamíska hlaupatakta og velvilja SkyEurope. Já og auðvitað, verðum vitni að kraftaverki í leiðinni. DRASL!

|

Verandi óforbetranleg Vökustelpa, mætti ég eðlilega á opnun kosningarmiðstöðvar Vöku í gærkvöldi. Mun það vera fimmta opnun kosningarmiðstöðvar Vöku sem ég hef verið viðstödd. Bækistöðvarnar eru nú staðsettar á 6. hæð í Austurstræti 17, ofan við 10-11, gegnt Hressó. Á Hressó verður því eðlilega gleeeeði fram að kosningum. Anywho. Þar var stappað af fólki og góð stemmning, og sigur 2005 í sjónmáli.

En eins og það er ágætt að vera bara á kantinum í þessari baráttu, þá verður því ekki neitað að fiðringurinn hellist yfir mann þegar maður mætir á staðinn. Niður í tær. Þessar liðnu kosningatarnir eru tvímælalaust meðal þess skemmtilegasta sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Pínku öfund í gangi. Ég er geðveik...og ætla að sjálfsögðu í Vökupartý á Hressó í kvöld. Aha.

|

13 janúar, 2005

Hún Drífa Kristín vinkona mín og allsherjar schniiiiilllingur á afmæli í dag! Til hamingju Drífa!

|

12 janúar, 2005

Ég er svöng. Þar af leiðandi pirruð. Hefi að auki frétt það að innreið Coca Cola Light í gosdrykkjaflóruna sé til þess eins hugsuð að gera út af við Diet Coke. Af því að 'diet'-orðið sé off-eða eitthvað álíka vitlaust. Núi. Ég elska Diet Coke. Leggst í undirskriftalista og vitleysu ef þetta reynist rétt. Og hvar eru myndirnar úr líffræðipartýinu Yann?!! Já og btw, Indjí og Gunni, takk fyrir mig, og þið hin öll fyrir síðast. Hjartanlega ósammála Valla um að teitlan hafi umbreyst í tónlistarhelvíti í lokin!

|

06 janúar, 2005

Hversu ósanngjarnt (glatað!) er það sem maður heyrir, að maður sé einhverja 4 daga að glata þoli sem tekur mann 2 vikur að byggja upp? Ég er að minnsta kosti alvarlega að súpa seyðið af því að hafa tekið 4 daga sinnum X í frí frá ræktinni yfir hátíðirnar. Skakklappaðist þannig skjálfandi úr body pump í dag að ég hélt ekki beinni línu aftur í búningsklefann. An..hel..djö. Þrettándagleði móður minnar bjargaði þó heilmiklu, og nokkrum hláturrokum síðar (af völdum nýju Stuðmannamyndarinnar) hefur skjálftinn blessunarlega yfirgefið mig. Dísan fer lúin í ból, föstudagur bíður...og er það rétt sem ég heyri af líffræðihittingi!!!?? jei!

Annað. Fór á mjög ja..tja..fyndinn og fróðlegan fyrirlestur í gær, (já uhum, pínkulítið að tapa mér) um hreysti og heilbrigði. Þar var amerískur fyrirlesari sem fór í gegnum allt þetta sem maður veit um heilbrigðislyklana (rétt fæði og hreyfing etc.) en þarf alltaf reglulega að heyra. Hann kom þó þarna fram með nokkrar 'staðreyndir' um hluti sem maður getur gert fyrir sjálfan sig, sem skv. afskaplega vísindalegum rannsóknum er hægt að umsnúa í þann fjölda ára sem maður 'yngist' í líkamsaldri við að tileinka sér. Nokkur dæmi. Hlátur: 1.7-8 ár, eftir hvað maður hlær mikið og innilega. Kynlíf: 1.6-8 ár, eftir því hversu oft. Þannig yngist maður um 1,6 ár ef kynlíf er stundað ~56 sinnum en heil 8 ár sé það stundað ~116 sinnum á ári. Tannþráður: 6.4 ár! Að nota tannþráð kemur í veg fyrir meinsemdir í munnholi sem geta haft alvarleg áhrif á hjarta- og æðakerfi blablabla, náði þessu ekki alveg, en hann var mjöööög ákveðinn með þetta tannþráðsissue. Sömuleiðis mælti maðurinn með því að borða morgunmat (1.1 ár) og sofa 7-8 tíma á sólarhring (3 ár). Þeir sem segðust þurfa minni svefn væru að ljúga. Jahérna, ég gæti haldið endalaust áfram. Held ég klikki út í heilsufarsgeðveikinni með því að benda á slóðina www.prevention.com. Þar er hægt að skemmta sér í pælingum um góð og vond kolvetni. Shit farin að sofa. Yfir og inn.

|

05 janúar, 2005

21 dagur í Búdapest...!

|

03 janúar, 2005

Brabb! Alltof fyndið, glens dagsins. Þannig er mál með vexti að Þórður er nýbúinn að fá nýja tölvu, og erum við systkinin búin að vera að hjálpa honum að gera hana reiðubúna til notkunar, setja upp forrit og dót. Nema hvað. Við auðvitað skelltum honum líka inná msn. Þannig rýkur hann beint inná msn þegar hann nettengist. Spáðum ekkert meira í því svo sem enda er msn okkur jafn eðlilegt og að draga andann.

Þórður poppar síðan upp á msn-inu áðan og við Júlíus byrjun bæði að bombardera á hann skilaboðum en fáum hvorugt neitt til baka. Við ekki að skilja neitt. Situr þá ekki Þórður við nýju tölvuna sína, og starir á skjáinn eins og naut á nývirki, þar sem skyndilega blikka í sífellu gulir kassar með nöfnum barnanna hans. Hvað er að gerast??? Hvað er með þessa kassa? Hvað er í gangi? Eftir símtöl og leiðbeiningar fékk ég til baka 'how is life?' og áður en ég náði að svara þessari viðamiklu spurningu kom 'ok bæ'. Bwahahha. Pabbi ekki að fíla msn. Skiligi!

|

Enn eitt árið um garð gengið, og þetta nýja tja, hefur sjaldnar verið velkomnara. Áramótin eru vanalega eini tími ársins sem ég verð áreiðanlega meyr, en ekki þessi áramótin. Ég strengdi eðlilega nýársheit, og voru þau heit af allt öðrum meiði en þau sem ég hef strengt undanfarin ár og hafa eiginlega alltaf verið mjög svipuð. Sjáum að ári hvert þau leiða mig. Móðir mín klippti út stjörnuspá Moggans handa mér og lét mig lesa hana tvisvar. Hugsa ég geri eins og í fyrra. Lít frekar á þetta sem forskrift heldur en spá. Alveg til í að leggja eitthvað á mig í þessa forskrift að farsælu ári. Anywho, gleeeeðilegt ár.

|