Hmmmmm

27 febrúar, 2005

Katla af klakanum farin, og keyrsluvika að baki. Selið hæða er hálftómlegt, en bíður sumars og endurfunda. Átti afskaplega skemmtileg kvöld um helgina, frábær partý bæði kvöldin og stemma í dísunni. Enda er talsverð þreyta í húsinu í dag og brjáluð vika framundan. Þarf ásamt mínu starfsmannafélags-crewi að setja saman eins og eina 600 manna árshátíð fyrir laugardag. Gaman. Helsi höfuðverkur vikunnar verður samt eðlilega að finna árshátíðardressið. Var búin að heita því að mæta í kjól...en er alveg að renna á rassinn með það. Mér finnst ég eins og fífl í kjól. Of fín kannski. Jæja, sjáum hvað setur.

Hitti mann á 22 í gær sem las hluti út úr árunni minni sem hann ætti ekki að vita. Það var eiginlega bara spooky.

|

22 febrúar, 2005

"Veistu það Ásdís að ég er búin að vera SVO hálmölt í kvöld....þú trúir því ekki!"

Well sister, I believe! :D

Ketillinn er kominn á landið í vikuheimsókn og gistir að sjálfsögðu í selinu hæða. Þar verður sumsé heldur glatt á hjalla fram yfir helgi. Áttum ó svo gott kvöld í gær, í góðra vina hópi, þar sem allar umræður kvöldins byrjuðu á K. Kannski til heiðurs Kötlu, en líklegra er þó að þessi óþrjótandi fyndnu umræðuefni byrja mörg hver á K! Sé fram á að nærvera Ketilsins a.k.a. The Corrupter, útheimti tipsy kvöld, stuttan svefn og arfaslök actavisafköst. En það er í meira en fínu lagi.

|

16 febrúar, 2005

Ég sé fram á þriðja daginn í ömurlegheitum í Selinu hæða. Hversu leiðinlegt? Garg. Það er hundur í tölvunni minni, og hún vill hvorki spila fyrir mig DVD né leyfa mér að Skype-a til Ungverjalands hvað þá annað. Nettur pirringur, en ég býst við að þetta séu eðlilegir reflexar tölvu sem hefur frá upphafi átt allt sitt undir tölvukunnáttu ykkar einlægrar. Ég sá auglýsta um daginn einhverja svona 'við hressum uppá tölvuna þína' þjónustu, sem ég er að hugsa um að nýta mér...hefur annars einhver betri uppástungu? Stöð 2 er byrjuð að rugla á mig, og það er eitthvað að öðlast líf í ísskápnum mínum. Ég er með hita og ég hata það.

Nú þegar fýlan hefur verið losuð, þá er víst í lagi að upplýsa að lífið er þrátt fyrir allt dandalagott. Dandalagott. (nb. stolið úr orðasafni Hörpu Hrannar)

|

15 febrúar, 2005

Bloggletin í hámæli í Selinu Hæða. En þar sem ég er heima í dag, með hita og magakveisu dauðans, eru engar afsakanir lengur gildar. Þó er nokkuð tíðindalaust af vígstöðvunum. Vaka vann sigur sem ég vissi, en þó þannig að við misstum mann úr stúdentaráði. Það voru eðlilega vonbrigði, en ég hef litlar áhyggjur af þessu. Við náum honum inn og jafnvel öðrum til á næsta ári.

Föstudagskveldinu var eytt með dínamítsystrunum úr Í háska fyrir páska, og heppnaðist teitlan í Pétri með eindæmum vel. Mojitobollan hitti í mark og háskasystur slógu nokkur met í skemmtilegheitum. Lítið fór þó fyrir afrekum, enda bærinn vart með lífsmarki. Kvöldið engu að síður stórgott. Fín helgi, með viðkvæmnislegum sunnudegi.

Nú ligg ég hinsvegar heima, sem fyrr sagði, og vorkenni mér þvílík ósköp. Er með beinverki og þannig illt í mallakút....að ég á bágt! Búin að byrgja mig upp af nauðsynjum, keypti hitamæli og verkjastillandi og nú má pestin bara vara sig. Yfir og inn félagar, yfir og inn.

|

09 febrúar, 2005

Í dag er fyrri kjördagur í kosningunum til Stúdentaráðs og Háskólafundar í Háskóla Íslands. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að drífa sig niður í skóla, annað hvort í dag eða morgun, fyrir kl 18, með skilríkin sín og merkja X við A. Áfram Vaka, sigur 2005!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

|

04 febrúar, 2005

Þá er maður kominn heim. Búin að sofa úr sér ferðaþreytu, þvo úr töskunum og komin aftur í Reykjavíkurrythmann. Sem er alls ekki slæmt. Mikil ósköp sem það er samt sem áður hollt að bregða sér aðeins af bæ og viðra sig í útlöndunum. Engu lagi líkt, og ekki dónalegt að viðra sig í Pestinni búda. Borgin er ógurlega falleg, þó hún hafi bæði verið köld og nakin þessa daga. Hlakka mikið til að sjá hana skrúði klædda að sumarlagi. En fyrst og fremst var frábært að hitta Kötlu. Hún er búin að koma sér rosalega vel fyrir í alveg fáránlega töff íbúð og unir hag sínum vel. Fórum í skólann hennar, sem lítur út, lyktar og virkar, eins og MR í fjórða veldi. Sem er ekki pósitívt í sjálfu sér....en eins og MR, er þetta þrátt fyrir þessa annmarka einn besti skólinn. Um þjóðarsálir lærði ég að Ungverjar eru fýldir og hægfara, Svíar eru leiðinlegir og norsarar, tja, þeir sem ég hitti kunnu ótrúlega dónalegar setningar á íslensku. Ég er víst en fjerdedel norsk, þannig þeir eru enn pínku súkkulaðimolar hjá mér. Hinsvegar finnast mér stórbrotnar hugmyndir Norðmanna og Svía um hina heilögu Skandinavíu, sem Ísland er tilfinnanlega ekki partur af. Sérstaklega þegar halda á skandinavísk partý. Fyndið. Þetta var allavega algjör snilldartúr, og þakka ég samferðamönnum mínum kærlega fyrir frábæran félagsskap.

Annars var ég að koma af Framadögum Aisec. Stóð þar í Actavis básnum og dreifði pennum og súkkulaði. Fyndið að vera komin hinum megin borðsins.

Sigríður Sunna læknastúdeína í Köben á afmæli í dag. Til hamingju Sunna mín!

|