Búin að eiga 2 svefnlitlar nætur þessa vikuna, en náði núna liðna nótt loks heilum svefni til morguns...en mætti þá auðvitað of seint í vinnuna. As you do. Hafði alveg afskaplega furðulegar draumfarir sem verða ekki tíundaðar hér, en hrökk upp með andfælum, yfir mig hamingjusöm að eina vandamálið í heimi vöku væri að vera orðin of sein. Það er ekki amalegt. Leben ist gut ja?
31 mars, 2005
29 mars, 2005
Ég náði reyndar ekki að smella blúshátíðinni inní dagskrá miðvikudagskvöldsins, enda í leikhúsi frameftir kvöldi...sem var reyndar mjög flott, Múlan Rús hjá FG. Í sárabætur nældi ég mér í miða á negrasálmatónleika með Andreu Gylfa og Kammerkór Hafnarfjarðar sem haldnir voru í Fríkirkjunni á föstudaginn langa-lokahnykkur blúshátíðarinnar. Þeir voru sannarlega síns virði, og Andrea Gylfa er stjarna. Ég hneygi mig.
Páskafríið gerði gott fyrir dísuna sem hvíldi sig fullt en skemmti sér líka fullt. Það var spilakvöld á laugardagskvöldinu í Hæðarselinu, þar sem hvítvín og Dolly Parton spiluðu ábyrgðarmikla rullu. Svona stelpukvöld eru svo mikil snilld. Á páskadag brunuðum við Gunnar Kristinn upp í bústað til foreldra okkar í Skorradal og fengum sveitaloft og unaðslega máltíð. Ég kíkti svo við þriðju skvísu á djammið sem fór samt þannig að tequila-álfurinn hefur verið sendur í skammarkrókinn, jafnvel varanlegt straff. Hann- ekki ég. Jæja, gaman að þessu. Stutt vinnuvika framundan og nóóóóg að gera.:)
23 mars, 2005
|21 mars, 2005
Stjörnuspá Moggans segir við vogir þessa heims "Vogin hefur mestan áhuga á daðri og skemmtunum þessa dagana. Hún vill lyfta sér upp. Einnig finnur hún sig knúna til þess að sækja listviðburði. Gerðu það sem gleður hjarta þitt."
Það er rétt. Og skal gert.
Vona að mánudagurinn fari um ykkur ljúfum höndum......yfir og inn.
16 mars, 2005
"Veistu það Ásdís, þetta er eins og vera ástfanginn af feitri, ljótri og níðfrekri belju." Þessi gullmoli fylgdi andvarpi bróður míns þegar hann lýsti fyrir mér afstöðu sinni til þess að bæta þeim 2 árum sem til þarf við BA gráðuna sína í guðfræði til að verða prestur. Enda drengurinn hreint ekki líklegur til að verða hefðbundinn í þeim efnum. Mér fannst þetta dáldið góð lýsing á óskaplegri innri togstreitu.
Miðvikudagur í húsi og helgarplön komin á kantinn. Mojito/íháskafyrirpáskateitla hjá Burns á fös og innlit á árshátíð Vöku á lau!jeij.
15 mars, 2005
Sól og skítakuldi. En mér er sama um kuldann. Líkaminn er greinilega orðinn þannig þjáður af D-vítamínskorti eftir veturinn að ekki virðist þurfa nema svona netta glannasól til að kvikindið valhoppi í vinnuna. Ef þeir myndu síðan spila fyrir mig My my my píkupoppslagið í útvarpinu, þá myndi líklega brenna yfir. Jahérna.
Á hinn bóginn gæti nú bara verið að ég sé ekki búin að fara nógu varlega með sýrurnar mínar í dag, og hence búin að anda að mér vímuvaldandi dósi af eitri. Ja hvort heldur sem er, góður dagur.
14 mars, 2005
Jæja, Hler ertu ekki bara kress?- var fyrsta setning þessa örþreytta mánudags. Skil ekki af hverju hún hváði, því eðlilega meinti ég, 'Jæja, Claire ertu ekki bara hress?' Spurning um að fara bara aftur í bólið? :)
12 mars, 2005
Jiiiiiiiiiiiiiibbbbíiiiiii, Franz Ferdinand á landinu ísa 27.maí!!!!!!!!!!! Skelfilega glöð með það.
Idolúrslitin ráðin og maður getur aftur farið að einbeita sér að miður merkilegum hlutum. Fagnaði Hildarvölu sigri í frábæru partýi hjá Bríeti og Guðmari, þar sem dollinu var myndvarpað á vegg og stemman gaf í framhaldi af sér heldur magnað gítarpartý. Hef bara sjaldan verið inní einnu herbergi með jafn mikið af músíkölsku fólki, tveir gítarar og hver einasti tónn raddaður í rassg....! Við fannz og Villi héldum síðan í bæ og hristum okkur, m.a. við Pink og Floyd, sem eru btw steiktustu menn í Evrópu.
Er nú á leið í matarboð til Þóru Kristínar, þar sem við Erla Rut og Harpa Hrönn a.k.a. Klúbburinn mun hittast eftir langt hlé. Veiveivei. Nýr linkur, Svava Björk bloggstelpa og sérlegur ráðgjafi minn hefur bæst í safnið!
08 mars, 2005
Komin á lygnan sjó í bili. Það er alltaf ljúft að leggja lokahönd á stór verkefni, og að vakna á sunnudegi eftir frábærlega vel heppnaða árshátíðina var ósköp notalegt. Allir sem ég hef talað við skemmtu sér konunglega og þá er ég sátt. Mest hrædd um að við verðum beðin að sitja áfram í starfsmannafélaginu, að þetta hafi verið of gott ár í félagslífi fyrirtækisins eheh:D
Á föstudagskvöldinu var líka mikið gaman, en þá hélt Akademía, styrktarfélag Vöku hinn árlega hátíðardinner. Góður matur, skemmtilegar ræður og snilldarfélagsskapur. Fór líka í fyrsta söngtímann minn á föstudaginn uppí FÍH. Ótrúlega gaman. Fékk alveg fiðring niður í tær við það að vera stödd inní alvöru tónlistarskóla aftur. Píanóleikur í einu herberginu, bassabarningur í öðru og sönginnlifun í því þriðja. Nú ligg ég á hverjum degi í korter á gólfinu í selinu hæða og geri mjög furðulegar öndunaræfingar, og pikka upp djassstandarda á afskaplega falskt píanó. Gaman. Ætla inn, skal inn.
03 mars, 2005
Ég ætla tileinka þessa færslu einni af mínum bestu vinkonum, henni Rakel Júlíu. Henni og Hrafni fæddist nefnilega í fyrradag, þann 1. mars eitt stykki stúlkubarn. Ku það hafa verið fyrirmyndarfæðing eftir fyrirmyndarmeðgöngu, og barnið eðlilega fyrirmyndarbarn. Við Rakel höfum verið vinkonur síðan við gengum samferða heim úr Langholtsskólanum fyrsta skóladaginn í 9 ára bekk. Það telur brátt heil (tek andköf meðan mér telst þetta til) 18 ár!!! Ég á því klárlega slatta í þessu barni! Til hamingju Rakel og Hrafn. Megi barnið heita Ásdís Rósa. Af vígstöðvunum er það annars að frétta að árshátíð Actavis er u.þ.b. að fullmótast og ég lofa engu minna en dúndri! Kjóllinn datt alveg upp fyrir í ljósi þess að vera dísunni ekki eðlislæg umgjörð og jafnvel fjarri því. Verð engu að síður ljómi kvöldins. En ég ræði þessa hátíð árs ekkert meir, enda hernaðarleyndarmál allt saman. Farin að sofa í hausinn á mér, yfir og út.
