Hmmmmm

26 maí, 2005

Í dag lauk ég fyrra ári mínu sem gjaldkeri starfsmannafélags Actavis og var kosin til áframhaldandi setu næsta árið. Veit satt að segja ekki hvort það er jei eða fokk. ;)

Í gær skilaði ég bók-Hitchhiker's guide to the Galaxy-sem ég er búin að vera með í láni í fjögur ár. Bókin hefur flutt með mér nokkrum sinnum á þessum tíma og hefur líklega aðeins látið á sjá á lánstímanum. Skammaðist mín niður í tær við afhendingu bókar. Skemmtilegt.

Í kvöld er ég að fara með rannsóknarstarfsfólki Actavis í keilu og Rauðarársteik. Býst við setu á öldurhúsi eftir það. Mun mala fólkið í keilu.

Uppáhalds píkupoppslagið mitt um þessar mundir er 'I like the way you move'. Guð gefi að það verði sem sjaldnast spilað í útvarpinu þegar ég er að keyra. Förin gæti endað með ósköpum.

Lexía vikunnar er: Ef þú færð gut-tilfinningu fyrir einhverju eða einhverjum-treystu því. Innsæið er besti vinur þinn og verndari.

|

17 maí, 2005

Ó svo góð helgi liðin. Frá frábæru seyðfirsku girliekvöldi, til brill Vökugrillveislu og síðbúins singstar partýs þar á eftir, til sveitasælu og humarveislu í faðmi fjölskyldunnar í Skorradal...allt saman með dash-i af sól...complett helgi.

Dísan er farin að ferðbúa sig enda verður land lagt undir fót á miðvikudagsmorgun og stefnan tekin á Manchester. Þar mun ég reyndar eyða lunganum af tímanum í fyrirlestrarsal í terminal 2 á Manchesterflugvelli....en stefni á að nýta kvöldin vel og taka pleisið út. Fimmtudagskvöldið fer eðlilega í leit að sjónvarpstæki sem er stillt á forkeppni Eurovision! :D

Tveir kærir vinir mínir áttu það sameiginlegt (ólíkir as hell though) að eiga afmæli á sunnudaginn. Annars vegar var það Andri Óttarsson a.k.a. rauða ljónið sem silaðist yfir merkileg mörk og telst nú á fertugsaldri. Hinsvegar varð Gunnar Þór Hallgrímsson a.k.a. Gunni bird 26 ára. Til hamingju gaurar! Þann dag hefði merkiskonan Áróra Sigurgeirsdóttir sömuleiðis átt afmæli. Blessuð sé minning hennar.

Í bústaðnum flaug eins og oft áður skemmtileg saga yfir matarborðið, sagan af überhógværu húsfreyjunni. Sagan segir af Flosa nokkrum Ólafssyni sem einn daginn tók hús á góðu fólki einhvers staðar í Borgarfjarðarsveit (gef ég mér). Nema hvað, að húsfrúin er þekkt um alla sveit fyrir að vera höfðingi heim að sækja og sömuleiðis fyrir að vera afskaplega hógvær. Frúin reiðir í tilefni heimsóknar fram veisluborð og einkar gómsæta köku. Spyr Flosi þá sísvona, hver hafi nú eiginlega búið þessa dýrindis köku til??? Húsfrúin svarar þá að bragði: Ja, ætli það hafi nú ekki verið ég. Ef mig skyldi kalla. Bwahahahahha.

|

11 maí, 2005

Hot-spotið í kvöld verður á Næsta bar. Tónleikar þar kl 22 með Andreu Gylfa og Szymon Kuran........og gestasöngkona er engin önnur en Heiðrún Hallgrímsdóttir!!!! Hlakka til að sjá stelpuna mína syngja.

|

09 maí, 2005

Valþór Ásgrímsson á kvartaldarafmæli í dag! Til hamingju með daginn beibí!

|

07 maí, 2005

Nokkur prýðisnaut hafa átt afmæli á síðustu dögum og önnur snilldarnaut bíða síns dags síðar í mánuðinum. Heiðrún Hallgrímsdóttir haglega geit varð 27 ára þann 3.maí og fær hún að sjálfsögðu þankakveðjur og hamingjuóskir frá Ródísi. Borgar Þór Einarsson fyllti síðan þriðja tuginn þann 4.maí, og gerði það með glæsibrag og dúndrandi gleði, takk fyrir mig ;)

|

Botninum náð. Leigubílstjórinn sem keyrði mig heim af síðasta djammi gaf mér símanúmerið sitt. Bara svona ef ég skyldi vilja hittast og spjalla.

( Í þessari færslu felast, þótt ótrúlegt megi virðast, engir fordómar fyrir leigubílstjórum whatsoever.)

|