Duran Duran í kvöld!!!!!!!!!!!!!!!! Jei!
30 júní, 2005
|28 júní, 2005
Er það DuranDuran eða ekki DuranDuran? Er ekki búin að kaupa miða og er að bögglast með þetta. Finnst þetta svoldið dýrt. En dýrt er líklega afstætt. Duran eða ekki Duran????????
25 júní, 2005
Maður er þannig stiginn upp úr pestinni! Er í glimrandi gír- í vinnunni reyndar- en pródúktið og tækin eru í spariskapinu sínu í dag og ég fylgi þá eðlilega í kjölfarið. Útskriftir í dag úr HÍ. Óska Ingunni Guðbrandsdóttur 'sálfræðingi' og Þórlindi Kjartanssyni 'hagfræðingi' innilega til hamingju með áfangann!
Fór á tónleika með Dúndurfréttum á fimmtudagskvöldið, og þar hitaði upp einhver gaur sem heitir Pétur Ben.....sem ég hef bara aldrei séð eða heyrt í. Hvar hefur maðurinn eiginlega haldið sig?!!!! Hann er algjörlega sturlaður músíkant, performer ...öööö...bara allur pakkinn! Mæli allavega með honum. Hann átti salinn, og ég kolféll fyrir honum.
21 júní, 2005
Enn heima í pest. Að hanga heima hjá sér heilu dagana, er by far, það allra leiðinlegasta í heimi. Ætla í vinnuna á morgun, veik eða frísk. Hananú!
20 júní, 2005
Ég ligg heima í smá pest og lagðist hér aðeins fyrir með Stein minn í fanginu. Ég verð bara alltaf jafn heilluð og aldrei þreytt á þessum orðaperlum. ( t.d. Í draumi sérhvers manns, Gömul skriftamál, Hamingjan og ég, Ég leita þín, Tíminn og vatnið og svo endalaust margt fleira.) Er að öðru leyti bara að dólast og Deiglast. Deiglan sefur aldrei.
Átti annars ágætis helgi, hitti margt gott fólk og tók gamalkunnan útilegukött á þetta. Það er held ég enn átt við mig þegar tal berst að útileguköttum í foreldrahúsum:D
15 júní, 2005
Sem ég svaf yfir mig í morgun. Spratt uppúr rúminu og rauk út í Silfrið blótandi pirruð. Lyklinum snúið, og skyndilega hamraði Wigwam hljóðhimnurnar....'come on come on come on, love is all over meeeeee'...sólgleraugun sett á nefið....og deginum bjargað. Búin að fá kaffi í kerfið, svo ég er að auki viðræðuhæf. Híha.
12 júní, 2005
Gærkvöldið var eitt það fallegasta sumarkvöld sem ég hef séð sunnanlands. Við Drífa fengum okkur ís og síðkvöldsgöngutúr og horfðum á sólarlagið á Nesinu. B-e-a-u-t-i-ful. Fór snemma í háttinn (á laugardagsmælikvarða) og eyddi mygluðum deginum í dag í vinnunni. Reyndi ég þar af alefli að fá leysnihraðatækin til að tvista við mig. Gekk reyndar hálfbrösulega.
Beyglugleðin á föstudaginn var frábær, enda er Jarþrúður höfðingi heim að sækja. Glæsilegar veitingar, singstar og fótboltaspil! Biður maður um meira? Ég var sérstaklega hrifin af fótboltaspilinu, og að öllum öðrum ólöstuðum hafði mitt lið (ég og Berglind) mikla yfirburði í því spili. Gæti alveg hugsað mér að eiga eitt svona:D Takk fyrir mig Jara!
Soffíu Kristínu Þórðardóttur fæddist lítill drengur um helgina. Innilega til hamingju með snjóboltann Soffía!
Jæja, segjum þetta gott í bili. Mánudagur, er aldrei þessu vant, velkominn.
Í Fréttablaðinu um helgina var viðtal við Þóru Kristínu vinkonu og Ásbjörgu. Þær eru bekkjarsystur úr læknisfræðinni, voru að klára 4.árið og lögðu 2.júní síðastliðinn land undir fót og ætla að verja næstu 2 mánuðum í Úganda, Afríku. Þær eru með alveg magnað blogg, með frásögnum og myndum af lífinu þar, og af verkefninu sem þær eru þáttakendur í. Skora á alla að lesa þetta. Holl lesning fyrir hvern þann sem telur raunveruleikann sinn sjálfsagðan eða vantar að setja sínar hversdagslegu krísur í nýtt samhengi.
09 júní, 2005
Í gærkvöldi fór ég fyrsta hringinn minn á golfvelli. Ef hring skyldi kalla...en hvað um það, hringurinn er kallaður Ljúflingur. Huhm. En jæja allir verða að byrja einhvers staðar.
Frammistaða mín var framar vonum jafnvel þó svo að kúlan hefði ekki í eitt einasta skipti ratað sína leið í holuna. Hún rataði hinsvegar bæði út á götu og í móa. Mér skilst að ég hafi grætt fullorðna konu með tilþrifum mínum í kringum móa-kúluna. Af hlátri sumsé. Þetta var engu að síður þrælskemmtilegt. Núna langar mig ekki lengur í gömlu kylfurnar hans pabba, heldur í nýja sjöu, níu og pútter með mjúku skafti. I was born to chip.
(áhyggjufullir geta dregið andann rólega því ég spái því að golfið verði sumarflipp sem taki enda)
06 júní, 2005
Að labba á staur er góð skemmtun. Þegar að Fanney gerir það-og maður er þeirrar ómældu ánægju aðnjótandi að sjá það gerast. Líklega fyndnasta sena síðan.....Fanney skallaði sófann heima hjá sér í örvæntingafullri tilraun til að taka breikhringinn víðfræga. Hvílík sjón.
Þetta er fáránlega þreyttur mánudagur. Get ekki beðið eftir að komast í sumarfrí. Ætla að taka það samhliða veru Kötlunnar á landinu....og það verða án efa gleði- og ólifnaðarvikur ársins. Can´t wait!
Annars heldur tíðindalaust af vígstöðvunum. Svoleiðis. Almenn ánægja með sumarið, bjartar nætur og ýlfrandi náttúru. ;) hehehe
01 júní, 2005
Ég var að koma úr mínum fyrsta golftíma. Eftir nokkra tugi tilrauna kom loks draumasveiflan...og síðan nokkrar til viðbótar. Pjúra hamingja. Alveg bara dáldið skemmtilegt! :)
