Ég hef verið klukkuð. Hún Guðrún Birna klukkaði mig, og heimtar af mér upplýsingar - 5 useless atriði um sjálfa mig.
1) Mér finnst matur/drykkur ekki góður ef hann er of heitur eða of kaldur. Er algjör kettlingur gagnvart heitu og finnst ís bestur þegar hann hefur fengið eins og hálfa mínútu í örbylgjuofni.
2) Ég sef alltaf á maganum (þegar pláss gefst) með annan handlegginn undir koddanum og gagnstæðan fótlegg út undan mér. Tek pláss.
3) Ég er með fóbíu fyrir flugum. Mér finnst það mjög leiðinlegt, þar sem ég er frekar illa haldin. Að lenda inn í lokuðu rými með geitungi er mín versta martröð. Hef farið útúr strætó á miðri leið vegna slíkra aðstæðna. Ég er nb. öll að skána með árunum.
4) Mig hefur alltaf langað til að verða listakona. Grúska í tónlist og yrkja ljóð. En ég er einhvern veginn orðin líffræðingur. Stefnan er því að vera skapandi í frístundum.
5) Ég er óþægilega liðug í annarri öxlinni og get teygt hægri handlegg þannig um höfuð mitt að ég get kitlað handakrika sama handleggs. Sexý.
Svo þarf ég víst að klukka einhverja. Hmmm. Ég klukka Þóru Kristínu og Hörpu Hrönn.
