Ég tel mig að jafnaði hafa sérdeilis ágæta jarðtengingu. Það er kannski helst að ég missi hana um stundarsakir þegar ég er undir stýri með góða tónlist í botni. Þetta kann líkast til ekki góðri lukku að stýra, þar sem ég er hvorki sérstaklega góður bílstjóri né heldur mjög landfræðilega áttuð. Þetta fer því ekkert sérstaklega vel saman, og býður bæði uppá slys og það að ég hreinlega týnist.
Þetta hefur þó gengið ágætlega fram að þessu. Nema hvað. Í dag tókst mér í syngjandi sveiflu, veifandi Hrönnsu minni sem ég var að fara að pikka upp, að taka heldur snarpa stefnuljósalausa beygju þvert yfir götuna og svína um leið lítillega á bílnum sem var að keyra til móts við mig. Mér fannst þetta reyndar ekkert mikið svínerí. Það rann ekki upp fyrir mér að ég hafði e.t.v. verið eilítið glæfraleg fyrr en ég mætti öskureiðum hatursfullum augum bílstjóra hins bílsins sem hafði staðnæmst og gerði sig líklegan til að berja mig.
Ég ætlaði sko ekki (þrátt fyrir að gera mér ágætlega grein fyrir kæruleysinu) að láta einhvern mann fara að lesa yfir hausamótunum á mér og setti mig því andlega í stellingar. Fer þá ekki andsk.. maðurinn að veifa framan í mig lögreglumerkinu sínu! Mín heppni. Tókst að svína á óeinkennisklæddri löggu! Maðurinn vindur sér með morðingjaaugnaráði að bílnum mínum og spyr án nokkurra málalenginga um ökuskírteinið mitt, og hefst síðan í framhaldi sú al- al- alversta yfirdrullun sem ég hef lent í. '...ég bara neita að trúa því að þú sért yfir höfuð með ökuréttindi...' og '..hvurslags eiginlega ábyrgðarleysi þetta..' og jarí jarí jarí. Alveg viðbjóðslega dónalegur og æstur.
Kemur síðan upp úr dúrnum að sérsvið mannsins innan lögreglunnar snýr að
umferðaröryggi. Að hafa séð mig sveiflast svona stefnuljósalaust yfir götuna hefur líklega sprengt æð í hausnum á honum. Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja. Vissi auðvitað upp á mig einhverja sök, en fannst ég auðvitað hvergi nærri eiga þessa yfirdrullun skilið. Ég þoli heldur illa skammir og gagnrýni (cause I can do no wrong you know :D) og varð því alveg bálvond. Brosti bara eins og asni og leið eins og glæpamanni . Eftir nokkra umhugsun hef ég þó komist að tvennu.
i) ég gæti mögulega þurft að tjúna mig niður þegar ég er undir stýri
ii) mig langar alveg til að anda í síma þessa manns