Hmmmmm

30 nóvember, 2005

...smá pirripú í dag. Er að setja mig inn í ákveðna gerð útreikninga og hel..an..djö..það gengur ekki fínt. Er að reikna sömu keyrsluna í þriðja sinn...and it takes ages. Í litla básnum í Skútuvoginum hefur bæði verið fnæst og bölvað. En bara lágt. Þá er um að gera að blogga þetta út úr kerfinu. GAAAAAAAAAARG. Búið.

Þetta er auðvitað allt saman forritinu að kenna. Klárlega. Chemstation deluxe er orðið dauðans.

|

28 nóvember, 2005

...í dagsins önn, er dropa gott að fá...í dagsins önn

Bara til að koma því að. Ég eeelska gott kaffi. Sérstaklega á mánudögum fyrir hádegi. ummmm ummmm. Guðs blessun að það eru þrjár eðalkaffivélar hérna í Skútuvoginum, og mala þær kaffið hver annarri betur :D

|

25 nóvember, 2005

jeiiiiiiiiij!!!!! Við fengum 9 fyrir áætlunargerðarverkefnið okkar!!! Í kvöld mun því hópur 2 celebrera áfkaflega! :D

Anna Margrét, Bella, Binni, Palli og Bergný....þið eruð snillingar.

|

23 nóvember, 2005

...var eitthvað svo mikið að hugsa um daginn um ábyrgð. Á orðum og gjörðum. Það virðist nefnilega sem að fólki finnist það almennt geta firrt sig 'ábyrgð' með orða- og/eða aðgerðaleysi.

Stundum getur það alveg verið the way to go. En maður má alveg minna sjálfan sig á það að þögninni t.d. getur fylgt nákvæmlega jafn mikil ábyrgð, ef ekki þyngri en getur fylgt sögðum orðum. Maður ber altso ábyrgð á því sem maður gerir og segir....og því sem maður gerir ekki og segir ekki.

Erfitt líf ha.

Jæja, ætla að hlamma mér í gula stóra mjúka sófann 'minn'. Elvar sambýlingur á kantinum og Lord of the Rings í dvd-inum.

|

20 nóvember, 2005

....denny crane...still coo coo for cocoa puffs....denny crane....who´s your daddy...denny crane.....

maður minn hvað þessir þættir eru mikil schnilld!!!

|

18 nóvember, 2005

Kl. 03.00 í nótt var settur punktur aftan við tæplega 40 síðna skýrslu dauðans um áætlanagerð. Dísan er því eilítið framlág og sybbin á þessum drottins degi. Thank god it´s friday!!!

Skora hér með á oddvita Vöku, Árna Helgason í einvígi í singstar á Hólmaslóðinni í kvöld. Árni.....þú mátt velja lagið!

|

15 nóvember, 2005

Foreldrar mínir áttu brúðkaupsafmæli þ. 11 nóvember síðastliðinn. Við erum að tala um 33 ár. 33 ár. Eftir því sem ég verð eldri geri ég mér sífellt betur grein fyrir því hvað hvert viðbætt ár er hreint magnað.

Mér varð hlýtt af því að vita af þeim líðandi tveimur um dansgólf út í bæ með hljómsveit Bo Hall í bakgrunni og huggulegan kvöldverð í maganum. Hamó M&P!

|

11 nóvember, 2005

Sushi er gott. Hvítt er gott. En innbyrðing annars hvors olli heldur beygluðum föstudegi. I wonder which.

Það var í takt við rembing minn við að tala ekki dönsku heldur ensku í Köben um helgina að í dag áskotnaðist mér námsbók á dönsku. Ójá. Verkefnastjórnun á dönsku. "Vejlending í Projektledelse. Samlet grundlag for proaktivt samspil om projektets ledelsesprocesser".
Hversu sexý? Höfundurinn Morten Fangel er víst Maðurinn.Maðurinn.

Sófinn í kvöld, grímuball Actavis á morgun. Jeij.

|

10 nóvember, 2005

Það bregst aldrei að þegar maður lendir á klakanum eftir dvöl erlendis er það alltaf veðralegur niðurgangur sem tekur á móti manni.

Dísunni langaði reyndar ekkert sérstaklega til að koma heim, en stærsta ástæða þess er líklega nettur verkkvíði sem virðist vera að láta á sér kræla í takt við verkefnin sem virðast ekki gera neitt annað en að hrannast upp.

Ferðin mín var eins og vitað var fyrirfram algjör gargandi snilld. Gestgjafarnir dekruðu við okkur og þessi helgi sem einkenndist af jólabjór, stelpustemmu, öfgakenndum verslunarleiðöngrum, nettilegu djammi og litlum svefni gleymist seint. Stimplaði mig að lokum útúr skandinavísku stemmningunni (sem þó fékk á sig nett tyrkneskan blæ undir lokin) sofin og sæl.

Kann mínum elskulegu ferðafélögum og gestgjöfum beggja vegna sunds bestu bestu þakkir fyrir frábæra samveru. Ég er rík.

....er rokin á Marú að hitta hryllilega skemmtilegt fólk í sushi og hvítu. Maður er manns gaman.

Rokk og ról.

|

01 nóvember, 2005

Ég og þessi eigum stefnumót í Köbenhavn á föstudaginn. Mikið hlakka ég til. :D

|