Ég átti afskaplega sérstakt moment í vikunni. Moment sem var svo fullkomlega tært, húmórískt og óstjórnlegt, að það er einhvern veginn hvorki hægt að lýsa því eða deila því. Ég gældi samt við það að það væri efni í góða sögu á tjásíðuna, en ég held ég verði að sætta mig við það þetta verði einkagleði mín og Drífu.
Þannig að án þess að ætlast til að það gleðji nokkurn nema okkur skal það látið uppi að momentið involveraði mjög hátíðlega tónleika á balkneskri menningarhátíð í Salnum. Þar hamraði serbnesk kona hið hryllilega hljóðfæri sembal eins og hún ætti lífið að leysa - og við - lágum í massívasta hláturskasti sem ég hef fengið síðan á gelgjunni á aftasta bekk. Þetta var algert jafngildi þess að fá hláturskast í jarðarför. Hræðilegt og æðislegt í senn. Hún hristist og grét bak við efnisskrána og ég hristist í hnipri með puttana í eyrunum og munninn herptan í baráttu lífs míns við hláturinn. Við klöngruðumst síðan út í hléi með verki í iðrunum af því að halda í okkur tryllingnum í 40 mínútur. Menningarvitar ha.
