Hmmmmm

22 febrúar, 2007

Héðan í frá kemur 22.febrúar 2007 alltaf til með að skipta mig máli, því rétt í þessu fæddist lítil stúlka, Júlíusar- og Soffíudóttir. Þetta er það nýskeð að mér hafa ekki borist aðrar fréttir en þær að allt hafi gengið eins og í sögu, mægðum heilsist vel, stúlkan sé falleg, frísk og sverji sig í móðurætt - við fyrstu sýn ;)

Þetta er gleðidagur!

|

21 febrúar, 2007

Nú er frost á fróni flæðir vitum úr.....eee......hásetinn!!!!

Ég er veik og wessaflóðið virðist aukast í takt við dýpt sjálfsvorkunnar, en ég get hvorugt stöðvað. Hinsvegar á ég von á myndarmanni með glaðning í poka um hádegisbil, sem ég bind vonir mínar við að ýti mér að ljósinu og að í mér sjatni. Einmitt það.

Þangað til ætla ég að eiga huggulega stund með William Shatner í gula sófanum.

|

20 febrúar, 2007

....þessi endurkoma mín er alveg ömurleg. Vélin er eitthvað höktandi, og eina ráðið sem ég kann er að reyna að smyrja hana með stuttum og stopulum færslum. Nú fer þetta bráðum að koma..

|

16 febrúar, 2007

Hversu fyndið væri að mæta bara með atriði í Smáralind í kvöld? 'Dottin út!?' 'Neeeiiiiiii, eiginlega ekki!' Vera bara hress á því.

Ætli ég berjist ekki við og sigrist á þessari löngun eins og þeirri sem greip mig þegar ég sat í salnum síðasta föstudag og horfði á ævintýrið utanfrá, þegar klappliðin byrjuðu að garga nöfn sinna keppenda og ég fylltist knýjandi þörf fyrir að standa upp, baða út öllum öngum, og öskra af lífs og sálar kröftum 'ÁFRAM JÁ!!!!!!!!!!!!'

....það hefði verið glorious sena.

|

14 febrúar, 2007

Ég er komin aftur. Ég hef saknað mín hér.

|