Hmmmmm

27 apríl, 2007

Ég átti klárt twilight-zone moment í morgun.

Þar eð Silfrið mitt fríða hafði stöðvast og drepist á miðri götu í síðdegistraffíkinni í gær, var ég mætt með það í aðhlynningu og hlustun á verkstæði Heklu. Þar hafði ég fengið mér sæti og beið úrskurðar þegar....................inn gekk MUNKUR!

Í brúnum kufli, með reipi um sig miðjan, ráfaði hann þarna um meðal okkar hinna morgunfúlu, og skínandi hjólkoppa og barnabílstóla- eins og ekkert væri eðlilegra.
Þetta er kannski ekkert svo far out, nema fyrir það að síðast þegar ég heimsótti Heklu með Silfrið mitt, sem er fyrir tæpum tveimur árum síðan, hitti ég líka fyrir MUNK! Í brúnum kufli, með reipi um sig miðjan - og var hann þar m.a.s. við annan munk. Ritaði ég færslu um þennan merkilega fund þá.

Nú gæti verið að ég sé að lesa of mikið í hlutina.....en ég held samt ekki. Það hljóta að vera klár tengsl á milli munksins, mín og Silfursins.........almáttugur það hlýtur að vera.

Engin perrakomment við þessa færslu takk. :)

|

26 apríl, 2007

....er þessi hjólageðveiki sem byrjar í næstu viku að tröllríða öllum fyrirtækjum, eða eru bara geðsjúklingar í Actavis? Ég er actually komin í lið! ....ég á eftir að sjá þetta gerast.

|

18 apríl, 2007

Ég fékk sms frá mæðginum sem stödd voru á litlum leikvelli í Gautaborg....' í sól og blíðu á róló'. Einmitt það. Thanks for sharing. Ég sit hér með hálsinn vafinn í trefil og heitan kaffibolla - er búin að setja mynd af tropical strönd á desktopið.....og það virkar ekki neitt. 55 dagar í Berlín-Zürich-París. 55 dagar....and counting.

|

13 apríl, 2007

....ég er að fara á Pétur, Björn og Jón í kvöld! Ég fékk idpod í gær! Það er föstudagur! Það verða heimabakaðar pizzur í seli Hæða á eftir - og Lizard juice í fordrykk! Ég er gjé ell glöð!

Annað og óskylt...ég er búin að vera að melta með mér fyrirbærið blísturkór undanfarið. Mér skilst að þetta sé grínlaust til. Mér finnst þetta mjög skemmtileg pæling.
Líklega er slíkur kór þó af þeirri gerðinni sem er brjálæðislega gaman að vera í en hryllingur á að hlusta .

Nú heyrist stundum blístrað í lögum. Af hverju er aldrei blístur....dúett?
Mig dreymir um að blístra dúett í 'röddum'.

|