Hmmmmm

11 júní, 2007

Það var óneitanlega freistandi að taka frídag í dag eftir helgi marineringar, enda aðeins 23 klst í brottför í Berlín-Zürich-París rúntinn okkar Ívars Páls. Flest er til reiðu, og eina planið okkar er að hafa ekki alltof mikið plan. Borða góðan mat, drekka gott vín, horfa á fólk og hitta vini okkar.

Hryggilegt er þó á þessum degi að Silfrið er í lamasessi. Ég veit þetta er bara bíll, en mér finnst það alveg genuinly leiðinlegt. Minn fákur og förunautur.

Við verðum að sjálfsögðu á tæknivæddu ferðalagi - reporting next time from Berlin.

|

08 júní, 2007

Það eina í stöðunni á þessum unaðslega föstudegi er að bruna austur að Selfossi með fullan bíl af Skútum og hvítu, og eyða kvöldinu í faðmi innræktaðra Bison hunda sem munu kallast á við nýinnfluttu, niðurrökuðu Briard tíkina í næsta húsi, meðan við Skúturnar grillum, skálum og gleðjumst saman. Eina í stöðunni. Fallegt.

|

07 júní, 2007

4 dagar og 18 klst í brottför! Ég er drulluspennt. Jeij!

|

04 júní, 2007

Jessörríbobb! Ich habe über mich geschlafen im Morgen gewesen sein bitte. Aber ich bin glücklich dabei ich eine grosse A-typen das Bett gedeilen mit und er hat mich gewagt. Ich bin ein Kugelschreiber.

|