Hmmmmm

31 október, 2007

Gott fólk. Nú er komið að því. Silfrið, minn fákur og förunautur til fjögurra ára er til sölu. Þessi glæsilegi VW Polo árgerð 2001, keyrður 64 þúsund km, bíður nú næstu elskandi eigenda. Toppbíll sem eyðir engu og gleður óendanlega-fæst á afar sanngjörnu verði.

|

23 október, 2007

Í gær fengum við litið þangað sem augað ekki sér og fundum þar lítinn dreng sem sýndi ýmsar listir og leyfði töku nokkurra mynda. Hér er prófíll - og klárt mömmunef! Þvílíkt undur.

|

15 október, 2007

Fyrir 29 árum, á sólríkum sunnudegi um þrjúleytið, dró ég andann í fyrsta skipti. Ég ku hafa verið sérlega feit og falleg, og er auðvitað enn (falleg) eða aftur (feit).

|

08 október, 2007

Uppgötvaði í gær, að það er til staður sem við kjöraðstæður slagar alveg í fegurð Seyðisfjarðar. Við hjónaleysin keyrðum Nesjavallaleið að Þingvöllum í gær, í sól og stillu, þar sem brakandi haustið hafði kallað fram ótrúlegustu liti í þessu óraunverulega umhverfi. Massive, eins og þeir segja.

Annars er bara allt í blóma. Ég hef enga stjórn yfir líkama mínum lengur og er ekki lengur nafli heims míns. Það er ótrúlega góð tilfinning.

|