Eðalfólkinu Hörpu og Guðjóni fæddist lítill drengur í fyrrakvöld í Kaupmannahöfn, 13 merkur og 51 cm. Öðru klassapari, Sunnu og Óla, fæddist lítill snáði þann 6.nóv s.l., einnig í Kaupmannahöfn. Þessir prinsar og foreldrar þeirra fá hér með hressilegar bloggkveðjur. All is full of babies.
30 nóvember, 2007
29 nóvember, 2007
Á rás 2 hljómar lagið Sympathy for the devil..og það er sem við manninn mælt - eins og alltaf þegar ég heyri þetta lag, að ég slengist í huganum í sumarið 1994 á Seyðisfjörð. Þegar ég var í hljómsveit með hverjum einasta tónfæra einstaklingi á mínum aldri í bænum, þegar mér fannst lífið vera að byrja, þegar ég byrjaði að drekka bjór og kaffi, þegar ég var svo ástfangin af strák að mér leið líkamlega illa í návist hans, þegar sumarið var ein samfelld sæla með söng og gítar um allan fjörð og það var svo spennandi að vera til að ég gat ekki sofið. Ég veit að við erum fleiri sem fáum örari hjartslátt og ljúft bros á andlitið þegar þetta lag hljómar. Gooooood times.
22 nóvember, 2007
Ég sat hér á skrifstofunni minni í Hafnarfirði, horfði á stórkostlegt útsýni yfir sólbaðað og frosið hraun, meðan að í eyrað á mér malaði kona á Indlandi. Ég skildi hana ekki, hún skildi mig ekki - að undanskildu alþjóðlegu kurteisishjalinu og orðinu 'e-mail'. Nú er bara að bíða og vona að á komist textuð samskipti sem gefa okkur báðum ráð og rými til að skilja. Skemmtilegt móment. Reyndar eitt af ófáum sem koma upp hér í vinnunni í samskiptum við fólk út um allan heim.
Uppáhalds fjarskiptafélaginn minn er hinsvegar hálfsjötug kona í Svíþjóð, afar reynd og virt í sínu fagi. Hún er þessi týpa sem að reykir 3 pakka á dag og sullar sjálfsagt dáldið á kvöldin, sem verður þess valdandi að þegar rödd hennar berst um símann minnir hún á ryðgaðan gaddavír. Þessi über-kaldhæðni gaddavír ásamt blöndu af nettum skapgerðarbresti og attitudi hefur ótrúlegan hæfileika til þess að móðga og hæða á svo lunkinn máta að það er vart að maður átti sig á því! Hún er hinsvegar alveg óhrædd við að láta álit sitt uppi þegar sá er á henni gállinn. Ég fékk til að mynda netpóst frá henni um daginn sem í stað að hefjast á 'Dear Asdis Rosa' hófst á 'Grrrrrrrrrrr.'. Ég væri alveg til í eina kollu með þessari konu.
Annars er það títt að Silfrið er selt! Blendnar tilfinningar tengdar því - enda er mér meinilla við breytingar. En ég held ég sé samt að silast áfram í þroska hvað það varðar. Yfir og inn.
