Ásdís í orlofi. Þetta eru skrítnir tímar. Hlutverkið fer mér þó ágætlega að ég tel. Hver dagur ber eitthvað nýtt í skauti sér, daglegar framfarir litla mannsins eru ótrúlegar, og það eru algjör forréttindi að fá að vakna til þessa drengs og vera með honum alla daga þessa fyrstu mánuði (þó að auðvitað sé ég alltaf jafn úldin og orðið 'forréttindi' mjög fjarri mér þegar mjólkurkallið kemur um miðja nótt :) )
En þetta er líka skrítið. Ekki nóg með að hann eigi hug manns allan, heldur á hann mann sannarlega með húð og hári!
Í Seli hæða er því mikið gaman að vera til, en það fer reyndar eftir vindum (og þá meina ég vindgangi sumra) hversu gaman :)
