Hmmmmm

11 febrúar, 2009

Með vísan til 2.mgr. 4. gr. laga nr. 21/1992, um Lánasjóð íslenskra námsmanna, er skipunartími yðar í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna til tveggja ára. Skipunartíminn er þó takmarkaður við embættistíma þess menntamálaráðherra er skipaði yður í stjórn sjóðsins. Í ljósi nýlegra ráðherraskipta er lokið setu yðar í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

Thank you very nice!

|

07 febrúar, 2009

Það er fallegur laugardagur. Fyrsti kaffibollinn situr á borðinu hjá mér sem ég dýfi í biscotti af miklum móð meðan frekari óhollusta er plönuð. Enda er nammidagur í dag. Ég á hann reyndar ekki skilið þar sem að það fór ekki mikil fyrir leikfiminni í vikunni. En samt. Dóra könnuður er á mute í sjónvarpinu og Andrew Bird á iPodnum. Ég er á náttfötunum og vildi helst vera í þeim í allan dag. Vaka vann kosningar og ef ég þekki mitt fólk rétt, er þriðji í sigri í kvöld. Plön dagsins eru að skreppa í hádegiskaffi til langa og löngu, og gera vikuinnkaupin. Dýrðardagur. Gott blogg.

|

03 febrúar, 2009

Ég fór í lítið viðtal í dag um tímann í stúdentapólítíkinni. Vegna þessa hef ég undanfarna daga verið að láta hugann reika til þessara ára sem maður gerði lítið annað en að sofa, borða og að vera í Vöku. Þvílíkir tímar! Ógleymanleg reynsla, ógleymanlegt fólk - ógleymanlegur tími. Þáþrá og þó.

|